is
en
  • Listafólk
  • Raddir
  • Skemmtanir
  • Fyrirlesarar
  • Um okkur
is
en
Til baka

Sóley Kristjáns

Sóley Kristjáns — uppistandari, fyrirlesari og stjórnendaþjálfi

Sóley Kristjáns er uppistandari, fyrirlesari og stjórnendaþjálfi sem sameinar húmor, innsýn og mannlega nálgun á einstakan hátt.

Hún hóf uppistandsferil sinn árið 2024, á 46 ára afmæli sínu, með frumsýningu á eigin sýningu, Að finna taktinn: Miðaldra uppistand. Síðan þá hefur hún komið fram víða um land, opnað fyrir bandaríska grínistanum Fortune Feimster og skapað sér sérstöðu með uppistandi sem byggir á skörpum athugunum, sjálfskímni og öllu því skrítna sem fylgir því að vera manneskja.

Að baki stendur yfir tuttugu ára reynsla af því að vinna með fólki, stjórnendum og vinnustöðum. Sú reynsla hefur mótað rödd hennar – bæði á sviðinu og í fyrirlestrum – þar sem húmor er ekki bara til að skemmta, heldur líka til að skapa tengingu, opna hugann og gera flókin viðfangsefni aðgengileg.

Hvort sem er í uppistandi, fræðslu eða þjálfun þá er markmið Sóleyjar alltaf hið sama: að fólk fari heim með aðeins léttara hjarta, nýja sýn og góðan hlátur í farteskinu.

Uppistand

Sóley Kristjánsdóttir er uppistandari sem sameinar beittan húmor, einlægar sögur og skarpa athugun á mannlegri hegðun. Hún sækir efniviðinn í hversdagsleikann, líf miðaldra konu, kynhlutverk, hinseginleikann – og allt það skemmtilega sem fylgir því að vera manneskja. Sóley hefur komið fram um allt land og er þekkt fyrir hlýjan, einlægan og persónulegan stíl sem fær áhorfendur bæði til að hlæja og sjá sjálfa sig í sögunum.

Veislustjórn - Fundarstjórn - Kynnir - Hópefli

Hvort sem þið viljið hlæja, lífga upp á dagskrána eða fá öruggan og skemmtilegan kynnir er Sóley á heimavelli. Hún býður upp á 20–30 mínútna uppistand, stýrir viðburðum og veislum eða leiðir hópa í gegnum létt og eftirminnilegt hópefli.

MÓÐURSKIPIÐ
  • Um Móðurskipið
Listafólk
Raddir
Skemmtanir
Fyrirlesarar
Um okkur

Móðurskipið Umboðsstofa
modurskipid@modurskipid.is
+354 454 8080