:quality(72))
Ragga Holm
Ragga Holm er tónlistarkona og skemmtikraftur. Hún hefur gefið út eigin tónlist, þar á meðal plötuna BIPOLAR. Einnig er hún er meðllimur í Reykjavíkurdætrum sem hafa komið víða fram bæði hér heima og erlendis.
Ragga hefur einnig starfað í mörg ár í útvarpi en hún hefur meðal annars starfað á KissFM, K100 og er núna með vikulegan þátt á Rás 2.
Plötusnúður
Ragga Holm hefur starfað sem plötusnúður í yfir 15 ár. Hún hefur gríðarlega mikla þekkingu á tónlist og víðtæka reynslu af allskonar viðburðum og ólíkum aldurshópum. Hún aðlagar tónlistina að þeirri stemningu sem óskað er eftir hverju sinni.
Veislustjórn
Ragga Holm sér um að koma fyrirtækinu í réttan gír frá fyrstu mínútu og skapa létta og skemmtilega stemningu. Sem veislustjóri leiðir hún kvöldið og heldur dagskránni lifandi.
Markmiðið er einfalt – að brjóta ísinn, efla stemninguna og gera kvöldið eftirminnilegt fyrir alla gesti.
Kynnir og fundarstjórn
Ragga býður einnig upp á fundarstjórn og tekur að sér að vera kynnir á hverskyns viðburðum.