is
en
  • Talent
  • Voices
  • Entertainment
  • Speakers
  • About us
is
en
Til baka

Ragga Holm

Spotify
Instagram

Ragga Holm er tónlistarkona og skemmtikraftur. Hún hefur gefið út eigin tónlist, þar á meðal plötuna BIPOLAR. Einnig er hún er meðllimur í Reykjavíkurdætrum sem hafa komið víða fram bæði hér heima og erlendis.

Ragga hefur einnig starfað í mörg ár í útvarpi en hún hefur meðal annars starfað á KissFM, K100 og er núna með vikulegan þátt á Rás 2. 

Plötusnúður

Ragga Holm hefur starfað sem plötusnúður í yfir 15 ár. Hún hefur gríðarlega mikla þekkingu á tónlist og víðtæka reynslu af allskonar viðburðum og ólíkum aldurshópum. Hún aðlagar tónlistina að þeirri stemningu sem óskað er eftir hverju sinni. 

Veislustjórn

Ragga Holm sér um að koma fyrirtækinu í réttan gír frá fyrstu mínútu og skapa létta og skemmtilega stemningu. Sem veislustjóri leiðir hún kvöldið og heldur dagskránni lifandi.

Markmiðið er einfalt – að brjóta ísinn, efla stemninguna og gera kvöldið eftirminnilegt fyrir alla gesti.

Kynnir og fundarstjórn

Ragga býður einnig upp á fundarstjórn og tekur að sér að vera kynnir á hverskyns viðburðum.

MÓÐURSKIPIÐ
  • About Móðurskipið
Talent
Voices
Entertainment
Speakers
About us

Móðurskipið Umboðsstofa
modurskipid@modurskipid.is
+354 454 8080