:quality(72))
Vilberg Andri Pálsson
Vilberg Andri Pálsson er tónlistarmaður og leikari. Hann útskrifaðist úr einum virtasta leiklistarskóla í heiminum: LAMDA árið 2023.
Fyrir útskrift lék hann mikið með sjálfstæðum leikhópum t.d. í Gaflaraleikhúsinu og sýningunni „Ðe lónlí blú bojs" sem sýnd var í Bæjarbíó 2019.
2022 skrifaði hann, lék og leikstýrði stuttmyndinni „Kílómetrar" sem vakti mikla athygli og var tilnefnd til Edduverðlauna 2023 og vann gullverðlaun á Independent Shorts Awards fyrir „besta leikteymið".
Eftir útskrift lék hann á West End í verkinu „Enemy of the people" undir leikstjórn Thomas Ostermeiers. Hann lék í kvikmyndinni „Fjallið" árið 2024 og hefur undanfarið starfað með sjálfstæðum leikhópum í Tjarnarbíó (Jónsmessunæturdraumur í uppsetningu Silfurskeiðarinnar) og Þjóðleikhúsinu (Kabarett í uppsetningu leikhúsi ókunnuga fólksins).