is
en
  • Talent
  • Voices
  • Entertainment
  • Speakers
  • About us
is
en
Til baka

Vilberg Andri Pálsson

Spotlight
Showreel

Vilberg Andri Pálsson er tónlistarmaður og leikari. Hann útskrifaðist úr einum virtasta leiklistarskóla í heiminum: LAMDA árið 2023. 

Fyrir útskrift lék hann mikið með sjálfstæðum leikhópum t.d. í Gaflaraleikhúsinu og sýningunni „Ðe lónlí blú bojs" sem sýnd var í Bæjarbíó 2019. 

2022 skrifaði hann, lék og leikstýrði stuttmyndinni „Kílómetrar" sem vakti mikla athygli og var tilnefnd til Edduverðlauna 2023 og vann gullverðlaun á Independent Shorts Awards fyrir „besta leikteymið".

Eftir útskrift lék hann á West End í verkinu „Enemy of the people" undir leikstjórn Thomas Ostermeiers. Hann lék í kvikmyndinni „Fjallið" árið 2024 og hefur undanfarið starfað með sjálfstæðum leikhópum í Tjarnarbíó (Jónsmessunæturdraumur í uppsetningu Silfurskeiðarinnar) og Þjóðleikhúsinu (Kabarett í uppsetningu leikhúsi ókunnuga fólksins).

MÓÐURSKIPIÐ
  • About Móðurskipið
Talent
Voices
Entertainment
Speakers
About us

Móðurskipið Umboðsstofa
modurskipid@modurskipid.is
+354 454 8080