is
en
  • Listafólk
  • Raddir
  • Skemmtanir
  • Fyrirlesarar
  • Um okkur
is
en
Til baka

Tómas Howser Harðarson

Showreel

Tómas Howser Harðarson útskrifaðist með BA í leiklist frá hinum virta Guildford School of Acting í Bretlandi árið 2022. Hann er nú búsettur á Íslandi en starfar reglulega á báðum stöðum og heldur sterkum tengslum við Bretland.

Um þessar mundir fer Tómas með hlutverk Cliff Bradshaw í söngleiknum Kabarett í Þjóðleikhúsinu og mun í maí næstkomandi frumsýna nýtt barnaleikrit, Heimsókn til Thalíu.

Á alþjóðlegum vettvangi er stærsta verkefni Tómasar til þessa aðalhlutverk í SONY-sjónvarpsþáttunum The Waking of a Nation (2025). Þar fór hann með hlutverk breska embættismannsins Miles Irving, en þættirnir voru teknir upp á Indlandi. Í hlutverkinu sýndi Tómas fram á færni sína í lýtalausum breskum hreim (RP), en hann leikur jafnframt áreynslulaust með bandarískum hreim.

Á Íslandi hefur Tómas m.a. birst í kvikmyndinni Þrot (2022), sem hlaut tilnefningar til Edduverðlauna fyrir handrit og leikstjórn, og sjónvarpsþáttunum Húsó á RÚV (2024). Í London steig hann sín fyrstu skref eftir útskrift í leikritinu Love (to) Bits í Barons Court Theatre og ferðaðist í kjölfarið um England með sýningunni Fantastic Fred.

Auk leiklistarinnar er Tómas fjölhæfur höfundur, en hann hefur starfað sem spurningahöfundur fyrir vinsæla sjónvarpsþáttinn Kviss á Sýn, ásamt því að skrifa spurningar fyrir PöbbKviss og KrakkaKviss.

MÓÐURSKIPIÐ
  • Um Móðurskipið
Listafólk
Raddir
Skemmtanir
Fyrirlesarar
Um okkur

Móðurskipið Umboðsstofa
modurskipid@modurskipid.is
+354 454 8080