:quality(72))
Sigríður Ragnarsdóttir
Sigríður Ragnarsdóttir (f. 2005) er leikkona, söngkona og dansari. Hún er nemandi á leikarabraut Listaháskóla Íslands og útskrifast vorið 2027. Jafnframt stundaði hún nám í leiklist við dans- og söngleikjaskólann Central í Kaupmannahöfn veturinn 2023-2024.
Áhugi hennar á sviðslistum kviknaði fyrir alvöru þegar hún tók þátt í uppfærslu á Billy Elliot hjá Det Ny Teater í Danmörku. Síðan þá hefur hún komið fram í fjölmörgum leik- og danssýningum í Danmörku og á Íslandi, bæði innan atvinnu- og áhugaleikhúss sem og skólastarfs, meðal annars í leik- og sönleikjasýningum Verzlunarskóla Íslands.
Sigríður hefur víðtækan bakgrunn í dansi og hefur keppt víða um heim í klassískum ballett, listdansi, djazz, nútímadansi og steppi með framúrskarandi árangri. Hún hefur jafnframt meðal annars leikið í auglýsingaherferðum fyrir Arion banka, Hopp og Vodafone.
Hún ólst upp í Danmörku og Noregi og talar reiprennandi íslensku, dönsku og ensku. Hún er mikil hestakona, náttúrubarn og lífskúnstner, hefur nýlega lokið skipstjóraprófi sem hún sér fyrir sér að nýta til skútusiglinga um heimsins höf og nýtur hún þess að takast á við nýjar áskoranir.
Næst verður hægt að sjá Sigríði í aðalhlutverki kvikmyndarinnar Hvar er draumurinn, sem frumsýnd verður í september.
:quality(72))
:quality(72))
:quality(72))
:quality(72))
:quality(72))
:quality(72))
:quality(72))
:quality(72))
:quality(72))
:quality(72))
:quality(72))
:quality(72))
:quality(72))
:quality(72))
:quality(72))
:quality(72))
:quality(90))
:quality(90))
:quality(90))
:quality(90))
:quality(90))
:quality(90))
:quality(90))
:quality(90))
:quality(90))
:quality(90))
:quality(90))
:quality(90))
:quality(90))
:quality(90))
:quality(90))
:quality(90))