)
Jasmín Pitt
Jasmín Dúfa ólst upp í Reykjavík þar sem hún stundaði klassískt dansnám í átta ár við Listdansskóla Íslands og söng í bæði Stúlknakór Reykjavíkur og Skólakór Kársness. Þetta leiddi hana fljótt inn í Þjóðleikhúsið, þar sem hún tók þátt í ýmsum uppsetningum sem bæði leikari og dansari.
Í framhaldi fór hún að taka að sér sjónvarps- og kvikmyndaverkefni, meðal annars í hlutverki Jóhönnu í Ófærð (Baltasar Kormákur) og Ally í Stellu Blómkvist (Óskar Axelsson).
Jasmín hóf nám við LAMDA árið 2017 og útskrifaðist með diplómu í leiklist. Árið 2021 lauk hún síðan BA-gráðu frá The Oxford School of Drama.
Frá útskrift hefur Jasmín unnið að fjölbreyttum leikhúsverkefnum, meðal annars í hlutverki Önnu í No Particular Order (leikstjórn Josh Roche), sett upp í Southwark Playhouse, Sapphire í Putrid Beauty (leikstjórn Barnaby Tobias), sett upp í Actors East, og Natasha í Three Sisters (leikstjórn Alessandra Davison), sett upp í Lyric Hammersmith. Um þessar mundir vinnur hún að fyrstu London-uppfærslu verksins The Name eftir Nóbelsverðlaunahafann Jon Fosse, í leikstjórn Simon Usher, í samstarfi við The Marylebone Theatre.
Nýlega hefur Jasmín einnig komið fram í hlutverki Láru í sjónvarpsþáttunum Hildur, í leikstjórn Tinnu Hrafnsdóttur (RÚV/Sjónvarp Símans), Pavlinu í FBI: International (CBS), Raquel í kvikmyndinni My Bloody Galentine (Tubi Original) og Kai í stuttmyndinni Bad Fortune (leikstjórn Arielle Levack), þar sem hún fer með aðalhlutverk.
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)