Björk Guðmundsdóttir
Björk Guðmundsdóttir útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands vorið 2021. Hún er einn af lykilmeðlimum Improv Íslands og hefur lært í virtustu spunaskólum heims í New York og LA.
Björk er leikkona, handritshöfundur og skemmtikraftur með fjölbreytta reynslu á sviði og í sjónvarpsverkefnum. hún hefur leikið í fjölda sjónvarpsþátta og fór hún til að mynda með aðalhlutverkið, Dísu í þáttaröðinni Flamingo bar, Birnu Höskuldsd. Menntamálaráðherra í þáttaseríunni Í versta falli og Betu í þáttaröðinni Skvíz. Einnig hefur hún leikið í fjölda sketsa og auglýsingum.
Björk hefur þar að auki leikið fjölbreytt hlutverk á sviði, þar á meðal í einleikinn Stelpur og strákar eftir Dennis Kelly, sem fékk einróma lof gagnrýnenda. Um þessar mundir leikur hún í einu frægasta gamanverki Shakespear, Jónsmessunæturdraumur sem sýnt er í Tjarnarbíó.
Björk er þessa stundina að læra ritlist við Háskóla Íslands (MA gráða) og hefur mikla ástríðu fyrir því að skrifa og hefur meðal annars skrifað stuttmyndina, Heimurinn minn, og einleikinn, Lífið er eitt stórt surprise party.
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)