is
en
  • Listafólk
  • Raddir
  • Skemmtanir
  • Fyrirlesarar
  • Um okkur
is
en
Til baka

Arnaldur Halldórsson

Showreel

Arnaldur Halldórsson er leikari, söngvari og dansari, fæddur árið 2006. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann komið víða við í leiklist, tónlist, dansi og talsetningu.

Arnaldur hóf leikferil sinn ungur og lék vorið 2019 í Matthildi í Borgarleikhúsinu. Í kjölfarið tók hann þátt í Er ég mamma mín?, samstarfsverkefni Borgarleikhússins og Kvenfélagsins Garps. Í Þjóðleikhúsinu hefur hann meðal annars leikið íKardemommubænum og Umskiptingi.

Tónlist hefur frá unga aldri skipað stóran sess í lífi Arnaldar. Árið 2017 var hann valinn Jólastjarna Björgvins og kom fram á Jólagestum Björgvins. Síðan þá hefur hann tekið þátt í fjölbreyttum tónlistarverkefnum og útskrifaðist vorið 2026 frá Menntaskólanum í tónlist með áherslu á söng.

Arnaldur hefur jafnframt náð eftirtektarverðum árangri í dansi og unnið til verðlauna á Dance World Cup. Hann hefur einnig talsett fjölda teiknimynda.

Á skjánum hefur Arnaldur meðal annars leikið í Edduverðlaunuðu stuttmyndinni Geltu! og sjónvarpsþáttunum Hildi.

Vorið 2025 útskrifaðist Arnaldur sem stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð. Skólaárið 2024–2025 gegndi hann embætti forseta nemendafélags skólans og var jafnframt nemandi við Þjóðleikhússkólann skólaárið 2025–2026.

MÓÐURSKIPIÐ
  • Um Móðurskipið
Listafólk
Raddir
Skemmtanir
Fyrirlesarar
Um okkur

Móðurskipið Umboðsstofa
modurskipid@modurskipid.is
+354 454 8080