)
Snjólaug Lúðvíksdóttir
Snjólaug er einn af fremstu uppistöndurum landsins og kemur mikið fram í veislum, skemmtunum, ráðstefnum og alls kyns viðburðum sem uppistandari og veislustjóri. Hún byrjaði í uppistandi í London og hefur skemmt víðs vegar um Evrópu á íslensku, ensku og frönsku. Hún er keppandi í fyrstu seríu af Taskmaster Ísland á Sýn og tíður gestur í skemmtiþáttum í sjónvarpi og útvarpi. Uppistandssýningin hennar Mjög fín bara fer af stað haustið 2026 þar sem hún tekst á við hversdagslegt brjálæði miðaldra móður með kaldhæðni og mikilli hreinskilni.
Snjólaug er einnig handritshöfundur. Hún lærði handritagerð í London og hefur meðal annars skrifað grínseríuna Ljúfa líf í framleiðslu Sýnar og glæpaseríuna Stellu Blomkvist í framleiðslu Saga Film.
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)