)
Raddbandið
Brúðkaup, veisla, árshátíð eða stórafmæli
Í skemmtunum Raddbandsins renna saman tónlist, húmor og leikhús þar sem þéttur samhljómur fær að njóta sín í frumsömdum textum við sígild jazz- og söngleikjalög.
Raddbandið skipa leik- og söngkonurnar Auður Finnbogadóttir, Rakel Björk Björnsdóttir og Viktoría Sigurðardóttir.
Hópurinn hefur vakið mikla athygli fyrir verk sín, meðal annars fjölskyldusöngleikinn Hver vill vera prinsessa? í Tjarnarbíó sem hlaut frábæra dóma og var talinn einn af hápunktum leikársins 2025 af menningargagnrýnanda Morgunblaðsins. Einnig hlaut Raddbandið mikið lof fyrir sýninguna Jólin á suðupunkti í Þjóðleikhúskjallaranum, en sýningin snýr aftur í Kjallarann jólin 2026!
Sérstakar óskir? Raddbandið semur fyrir þig nýjan og persónulegan texta fyrir tilefnið, sem gerir upplifunina ennþá eftirminnilegri!
Bókanir: bokanir@modurskipid.is
)
)
)
)