is
en
  • Listafólk
  • Raddir
  • Skemmtanir
  • Fyrirlesarar
  • Um okkur
is
en
Til baka

Jólin á suðupunkti

Showreel

Raddbandið reddar jólunum!

Ofurkonurnar í Raddbandinu taka jólahátíðina með trompi ár hvert og alltaf er allt við það að sjóða upp úr!

Þrjár þreyttar nútímamæður syngja inn jólin með töfrandi samhljómi, gleði og beittum húmor. Atriðið er brot úr sýningunni Jólin á suðupunkti sem slegið hefur í gegn í Þjóðleikhúskjallaranum! Stöllurnar flytja nýja og sprenghlægilega texta um jólastress og foreldrahlutverkið við þekkt jazz- og jólalög.

Fallegar þríradda útsetningar Raddbandsins koma öllum í hátíðarskap. Fullkomin blanda af jólastemningu, gríni og tónlist! 

Hægt er að bóka jólaprógram Raddbandsins á viðburði, jólahlaðborð og skemmtanir um allt land! Frábær skemmtun fyrir fyrirtæki og hópa. 

Raddbandið:

Auður Finnbogadóttir

Rakel Björk Björnsdóttur

Viktoría Sigurðardóttir

Bókanir: bokanir@modurskipid.is

MÓÐURSKIPIÐ
  • Um Móðurskipið
Listafólk
Raddir
Skemmtanir
Fyrirlesarar
Um okkur

Móðurskipið Umboðsstofa
modurskipid@modurskipid.is
+354 454 8080