)
Guðmundur Einar
Leikari
Guðmundur Einar vakti athygli sem gamanleikari í sjónvarpsþáttunum Kanarí. Hann hefur leikið ótal sýningar með spunaleikhópnum Improv Ísland. Hann hefur leikið ýmis hlutverk í sjónvarpsþáttum og auglýsingum.
Skemmtikraftur
Guðmundur Einar er nýr og vinsæll uppistandari. Sýningin hans Lítill töffari sló í gegn og var sýnd um allt land.
Guðmundur Einar er þaulreyndur veislustjóri sem semur nýtt efni fyrir hvert tilefni auk vinsælla leikja og atriða.
Árshátíðarmyndbönd
Guðmundur Einar er leikstjóri (Kanarí, Sveitarómantík) og tökumaður (Berglind Festival) og getur gert fagleg myndbönd fyrir viðburðinn.
Hann hefur unnið Íslensku Sjónvarpsverðlaunin sem leikstjóri og framleitt þætti eins og Vikuna með Gísla Marteini.
Fyrirlesari
Guðmundur Einar hefur sýnt spuna með Improv Ísland í 10 ár og kennt fjölmörg spunanámskeið.
Guðmundur deilir reynslu sinni í fyrirlestrum og vinnustofum. Helstu umfjöllunarefnin eru jákvæðni, samvinna, skapandi núvitund, fagmennska og galdurinn í óvissunni.
Umsagnir
Ég grét úr hlátri
- Vigdís Hafliða
Upprisa á miklum talent í uppistandi
- Bergur Ebbi
Ég hló og hló og hló….edrú
- Snjólaug Lúðvíks
Fyndin sýning hjá fyndnum manni
- Berglind festival
Fjölbreytt, ferskt, frumlegt og fyrst og fremst fyndið!
- Jóhann Alfreð
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)