:quality(72))
Friðgeir Einarsson
Friðgeir Einarsson (f. 1981) er leikari og höfundur, búsettur í Reykjavík.
Frá útskrift úr Listaháskólanum árið 2008 hefur hann komið fram í tugum leiksýninga; verk sem hann hefur skrifað og/eða leikið í hafa verið sett upp í bæði Borgarleikhúsi og Þjóðleikhúsi, auk þess að hafa verið flutt á sviðslistahátíðum erlendis. Leikverkið Club Romantica, sem Friðgeir samdi og lék sjálfur, hlaut Grímuna sem leikrit ársins 2019 og gekk í þrjú leikár. Árið 2025 var Friðgeir tilnefndur til Grímunnar fyrir leik í aukahlutverk fyrir frammistöðu sína í sýningunni Innkaupapokanum. Nýjasta leikrit Friðgeirs, Nýtt eldhús eftir máli, var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu haustið 2026.
Friðgeir hefur komið talsvert að gerð leikins efnis fyrir sjónvarp og útvarp. Hann var einn af höfundum Áramótaskaups RÚV 2022 og 2024, og lék nokkur hlutverk í þeim báðum. Friðgeir lék annað aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum Hæst á Sjónvarpi Símans, og kom að skrifum og þróun persóna á fyrri stigum. Friðgeir fer jafnframt með hlutverk í þáttaseríunum Ögrum skorið og Ljúfa líf sem báðar eru væntanlegar á næstu misserum.
Þá er Friðgeir einn af meðlimum leikhópsins Kriðpleir sem hefur slegið í gegn í Útvarpsleikhúsinu fyrir sinn hversdagslega húmor og sjálfsháð. Einhver kannast þó kannski helst við Friðgeir úr hlutverki Tjóns Tjónssonar úr auglýsingaherferð VÍS sem hleypt var af stokkunum sumarið 2026.
Friðgeir hefur einnig gefið sér gott orð sem rithöfundur og sent frá sér fimm bækur, skáldsögur og smásagnasöfn.