is
en
  • Talent
  • Voices
  • Entertainment
  • Speakers
  • About us
is
en
Til baka

Vera Matsdóttir

Youtube
Youtube

Hin hálf íslenska, hálf sænska sópransöngkona Vera Hjördís Matsdóttir lauk meistaragráðu í klassískum söng við Konunglega Tónlistarháskóla Í Den Haag árið 2024 undir handleiðslu Frans Fiselier. Þar áður lauk hún bakkalárgráðu við Listaháskóla Íslands vorið 2020. Við útskrift frá Listaháskólanum var Vera valin sem styrkhafi úr Styrktarsjóði Halldórs Hansen. Hún var einnig í hópi þeirra 16 afburða námsmanna sem hlutu námsstyrk frá Landsbankanum vorið 2023. Vera hlaut sérstök verðlaun í Vox Domini árið 2024 fyrir besta flutning á verki eftir tónskáld keppninnar sem það ár var Hildigunnur Rúnarsdóttir. Hún kom fram á Opernfest Prague í Smetana Hall í júlí 2023 ásamt Sinfóníuhljómsveit. Vera kemur reglulega fram sem einsöngvari hér á landi. Nýjustu dæmi eru m.a. verkefna, þátttaka hennar í uppfærslu Kammeróperunnar á Brúðkaupi Fígarós í Borgarleikhúsinu í hlutverki Barbarínu en einnig þátttaka hennar í óperu eftir Þórunni Guðmundsdóttur, Hliðarspor og í óperunni Brím eftir Friðrik Margrétar-Guðmundsson.  Vera Hjördís gengdi einsöngs hlutverki í flutningi á Petite Messe Solennelle eftir Rossini í Salnum í Kópavogi undir stjórn Stefan Sand í maí síðastliðnum. Heimasíða www.veramatsdottir.com

MÓÐURSKIPIÐ
  • About Móðurskipið
Talent
Voices
Entertainment
Speakers
About us

Móðurskipið Umboðsstofa
modurskipid@modurskipid.is
+354 454 8080