is
en
  • Talent
  • Voices
  • Entertainment
  • Speakers
  • About us
is
en
Til baka

Lalli töframaður

Lárus Blöndal, betur þekktur sem Lalli töframaður, er án nokkurs vafa einn fjölhæfasti skemmtikraftur landsins. Uppákomur og skemmtanir Lalla eru fullkomin samsuða af uppistandi, töfrum, tónlist, sjónrænu gríni og gleði!

Lalli var fastráðinn starfsmaður í Borgarleikhúsinu til margra ára en núna starfar hann 100% sem sjálfstætt starfandi listamaður/skemmtikraftur og hefur í gegnum tíðina sett upp, framleitt og/eða komið að fjölmörgum og fjölbreyttum verkefnum t.d. Töfrandi Sinfónía (Lalli töframaður & Sinfóníuhljómsveit Íslands, Eldborg), Frost (Þjóðleikhúsið), skrifað bækurnar Skemmtikrafturinn (Forlagið) og Dagur með Lalla (Rósakot), sett upp barnasýningarnar Lalli & Töframaðurinn, Magic Show, Nýjustu töfrar & vísindi (Tjarnarbíó), Barnasýning ársins (Borgarleikhúsið), er annar stofnandi Reykjavík Kabarett (Þjóðleikhúsið, Tjarnarbíó, Leikfélag Akureyrar), Lalli kennir (Rúv), Nýjustu töfrar & vísindi (Stundin Okkar / Rúv), gefið út jóla vínyl plötuna Gleðilega hátíð og margt fleira!

Hvað sem tilefnið er, þá er Lalli töframaður með ermarnar stútfullar af óvæntum uppákomum og skemmtilegheitum - hvort sem það er fyrir börn, unglinga eða fullorðna!

Veislustjóri Lalli er þaulreyndur og fagmannlegur veislustjóri sem býður upp á allt sem veislustjóri getur mögulega boðið upp á.

+18 Þegar svo ber undir er Lalli alltaf tilbúinn að draga fram +18 grínið sitt sem kemur fólki alltaf skemmtilega á óvart.

Tónlistar bingo ,,Ef bingo væri partý” - Í staðin fyrir bókstafi/tölur að þá spilum við tónlist!! Fullkomið fyrir bjórkvöldið!

Á ENSKU Blandaður hópur þjóðerna? Minnsta málið, Lalli býður upp á allt sitt líka á ensku.

Skemmtiatriði Lalli Töframaður býður upp á skemmtiatriði sem er samblanda af uppistandi, töfrum og fagmannlegri vitleysu sem hristir vel upp í fólki. 

Pub Quiz Lalli stjórnar pub quiz af sinni alkunnu snilld og brýtur upp viðburðinn með töfrum, gríni og almennri gleði.

Allur pakkinn Veislustjórn - Skemmtiatriði - Gítar/Söngur - Hljóðkerfi - Tónlist - DJ

Karaoke Lalli sér um öll tæknimál fyrir þig og stjórnar karaoke´inu allt kvöldið.

Kynnir Fjölhæfur og reynslumikill kynnir með ermarnar fullar af gríni, gítar og skemmtun.

Barna og fjölskyldu Það er alltaf jafn þakklátt þegar skemmtiatriði nær jafn vel til fullorðna sem og barna svo við getum ÖLL skemmt okkur saman.

Bingó Lalli heldur utan um og stjórnar bingóinu í bland við það að grínast, töfra og skemmta sér með spilurum.

MÓÐURSKIPIÐ
  • About Móðurskipið
Talent
Voices
Entertainment
Speakers
About us

Móðurskipið Umboðsstofa
modurskipid@modurskipid.is
+354 454 8080