)
Hver vill vera prinsessa?
Prinsessurnar eru klárar í ævintýri!
Prinsessur 7, 9 og 13 stíga beint út úr töfraveröld leikhússins og til ykkar – fullar af söng, gleði, og hugrekki! Í þessari líflegu og litríku skemmtun fara prinsessurnar þrjár í spennandi ferðalag þar sem þær læra að standa með sjálfri sér og treysta hver á aðra. Saman geta þær sigrað heiminn og verið þær sjálfar. Með grípandi tónlist, húmor og skemmtilegum prinsessudansi fá þær krakkana til að taka þátt í ævintýrinu með sér!
Hér er á ferðinni valdeflandi og fjörug upplifun fyrir káta krakka!
Hægt er að bóka prinsessurnar á viðburði og skemmtanir um allt land! Einnig í leik- og grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu á virkum dögum.
Lengd atriðis frá 20 mín + tími fyrir myndatöku og spjall við prinsessurnar
Prinsessa 7: Viktoría Sigurðardóttir
Prinsessa 9: Rakel Björk Björnsdóttir
Prinsessa 13: Auður Finnbogadóttir
Bókanir: bokanir@modurskipid.is
)
)
)
)