)
Ávaxtakarfan
Ávaxtakarfan – klassík sem gleður!
Ávaxtakarfan er eitt vinsælasta íslenska barnaleikrit allra tíma, litríkt og fullt af ógleymanlegum karakterum!
Gedda gulrót, Mæja jarðarber og Palla pera úr Ávaxtakörfunni eru á ferðinni og tilbúnar að skemmta kátum krökkum með fjöri, söng og sprelli!
Vinkonurnar syngja stórskemmtilegu lögin úr Ávaxtakörfunni og komast að því að vináttan er sterkasta afl í heimi! Stemningin er smitandi frá fyrstu mínútu og börn elska að syngja og dansa með.
Hægt er að bóka Ávaxtakörfuna á viðburði og skemmtanir um allt land! Einnig í leik- og grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu á virkum dögum.
Lengd atriðis frá 20 mín + tími fyrir myndatöku og spjall.
Gedda gulrót: Viktoría Sigurðardóttir
Mæja jarðarber: Rakel Björk Björnsdóttir
Palla pera: Auður Finnbogadóttir