is
en
  • Talent
  • Voices
  • Entertainment
  • Speakers
  • About us
is
en
Til baka

Ingi Þór Þórhallsson

Ingi Þór Þórhallsson (f. 1998) útskrifaðist sem leikari af leikarabraut við Listaháskóla Íslands vorið 2025.

Ingi Þór hefur komið víða fram sem leikari en hann hóf ferilinn ungur í verkinu Oliver! í Þjóðleikhúsinu. Leiðin lá í Verzlunarskóla Íslands þar sem hann tók þátt í öllum mögulegum söngleikjum og þáttaseríum innan skólans.

Ingi Þór hefur leikið töluvert á sviði í sjálfstæðum verkum á borð við Ðe Lónlí Blú Bojs og Hlið við hlið sem sýnd hafa verið fyrir fullu húsi í Bæjarbíó, Gamla Bíó og Háskólabíó. Nýverið hefur Ingi Þór farið með hlutverk í Áramótaskaupinu, sjónvarpsseríunni Ljúfa líf sem er í framleiðslu og nýrri íslenskri glæpaseríu sem fór í framleiðslu nýverið. Ingi Þór fer einnig með hlutverk í kvikmyndinni Hvar er draumurinn sem stefnt er á að komi út um mitt ár 2026.

Árið 2024 stofnaði Ingi ásamt félögum sínum sviðslistahúsið Afturámóti sem hefur sett á svið fjölda sýninga undanfarin tvö sumur og hlaut Hvatningarverðlaun Grímunnar árið 2025 fyrir störf sín. Ásamt þessu hefur Ingi Þór gefið út tónlist undir eigin nafni og hélt hann útgáfutónleika fyrir sína fyrstu smáskífu í Háskólabíó árið 2024.

MÓÐURSKIPIÐ
  • About Móðurskipið
Talent
Voices
Entertainment
Speakers
About us

Móðurskipið Umboðsstofa
modurskipid@modurskipid.is
+354 454 8080